Er þetta ekki dæmigert?

Reynum aðeins að læra af þessu!   Það er tilgangslaust að stóla á einkaframtakið í þessum efnum.  Þessir pésar hugsa einungis um eigin hag og er slétt sama um alla aðra.   Setjum Eimskip á svarta listann, þeir eru greinilega ekki hér fyrir samfélagið. 

Þegar samningur þeirra rennur út, þá skulum við tjá þeim að óþarft sé fyrir þá að reyna endurnýjun samnings.    Aðalatriðið er samt þetta, þeir hugsa bara um eigin hag.


mbl.is Slitnar upp úr viðræðum um aukaferðir Herjólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt svo aumt!

Leikur Íslands og Liechtenstein vs. leikur Svía og Dana.   Svart og hvítt.   Það er alveg á mörkunum að við getum kallað leik okkar manna knattspyrnu.  Leikurinn einkenndist af slökum sendinugm, vanhugsðuðum ákvörðunum, leti flestra leikmanna, almennu andleysi.  Auðvitað áttum við að vinna þennan leik, auðvitað er ekki til nein afsökun.  Þjálfarar og flestir leikmenn ættu að skammast sín.  Sorglegast af öllu er þó að sjá til fyrirliðans, sem er staður og drífur ekki neitt áfram.   Í viðtölum telur hann sig vera í besta klúbbnum, bestu deildinni, líklega þá besta bekknum líka.   Í viðtali í dag, lætur hann þess getið að hann sé trúlega ekki í sínu besta formi(?!), hvað er maðurinn að gera þarna úti?  Hann er amk. ekki þreyttur þannig að hann hefði átt að geta hlaupið ögn meira, verið meira drífandi.

Svo horfum við á leikmenn í liði Dana og Svía - á fullu í 90 mín, baráttan og krafturinn svo sýnilegur, en okkar menn á rölti eins og þeir héldu að þeir væru sýningargripir á nautgripasýningu eða einhverju álíka.

Leikmenn fóru trúlega ekki eftir því sem þjálfarinn lagði upp með, hvers vegna?  Líklega gæti það verið vegna þess að þeir líta ekki upp til hans, virða hann ekki nægjanlega. 

Stutt í næsta leik, ekki tími til að láta þjálfarann hætta - Hið góða í málinu er að fyirliðinn er í leikbanni og nú ætti að gefast tækifæri til að láta þá ungu, óreyndu og viljugu stráka byrja leikinn og klára hann líka.  Leikir vinnast ekki með  viðtölum í blöðum og yfirlýsingum um að leikmenn séu á launaskrá hjá stórum klúbbum út í heimi.


mbl.is Jafntefli gegn Liechtenstein og Eiður í leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjör í firðinum - ha?

Kjördagur rennur upp í Hafnarfirði.  Ef ég skil málið rétt, þá er ágreiningurinn með þeim hætti að nánast er augljóst að það verður ekki neinn friður um niðurstöðuna.   Hvor sem sigrar þá verður sigurinn svo naumur að hann getur ekki skapað eina einustu sátt.   Hafnfirðingar eru að ganga inn í sama ruglið og þegar R listinn lét kjósa um veru eða ekki veru flugvallarins í Vatnsmýrinni.   Niðurstaðan svo óljós og tölfræðilega út á kanti að ekki nokkrum manni dettur í hug að lýsa sig tapara á þeim vettvangi - allt í upplausn.

Auðvitað er það þannig að hverjum manni mætti vera það ljóst að virkjana og álversbrjálæði okkar mörlanda er gengið út i tóma vitleysu.   Gera stórt álver miklu stærra og það í túnfæti vöxtulegrar byggðar er vitaskuld galið.   Þetta sjá auðvitað allir nema sporgöngumenn peninga og auðafla þessa lands, forskrúfaðir af áróðri Alcan og hótunum þeirra um að hverfa á braut ef þeirra sjónarmið fái ekki brautargengi.  

Lýðræðið gengur út á að kjörnir fulltrúar taki af skarið í málum sem þessum taki gildar ákvarðanir, en hlaupi ekki í skjól eins og lúbarðir rakkar þegar vanda ber að höndum.   Það hefði verið bragur af því ef þeir hefðu einfaldlega sagt nei, kemur ekki til greina,   það er hugsanlega pláss á Keilisnesi eða í Helguvík, það mætti etv. bjóða ykkur til viðræðna um þá staði ef þið hefðuð áhuga.   Notum núverandi athafnasvæði til byggðar og útivistar og verðbætum um leið þá miklu byggð sem nú þegar stendur nærri álverinu.

Við þurfum ekki að leggast undir feld eins og Þorgeir forðum, segjum nei, nei ogaftur nei.

 

 

Þá er að byrja aftur!

Datt alveg úr stuði þegar þeir opinberuðu lykilorðið mitt.  Ekki það að nokkur hafi gripið það og notað til óhæfuverka.  Þetta nýja var svo snúið og leiðinlegt að ég hálfvegis rann á því og út af áhuganum á blogginu.  Þetta er að koma aftur og sérstaklega eftir að Jón bróðir sveitarstjórnarmaður í Árborg er byrjaður að blogga.   Það verður gaman að sjá til hans.  Svo mikið er víst að sá umhverfisvæni V-græni maður á eftir að skerpa á ýmsum málum og setja út nýja fleti, sér og sínum til ánægju og frekari heilaleika.

Dapurlegra..

Þetta sem sagt er í fréttinni er auðvitað grafalfarlegt mál og dapurlegt um leið.  Það eru fleiri hliðar á þessu máli.  Við sem erum nærri grunnskólum borgarinnar tökum eftir því hversu margir það eru sem koma akandi með börnin í skólann.   Þetta virðist ekki bara vera suma daga, heldur sér maður marga gera þetta upp á hvern dag.     Dapurlegt finnst mér, sérstaklega í ljósi þeirrar staðreyndar að skólarnir eru nánast í öllum tilvikum innan við 5 mín. göngufæri frá heimilunum.    Það er svo ótrúlega margt sem við gætum lagað í fari okkar sjálfra, tökum við ef til vill fagnandi fréttum um ógæfu af ýmsum toga, svona rétt til að þurfa ekki að horfast í augu við okkur sjálf, í okkar eigin rugli?

 


mbl.is 73% aka einir í bíl til vinnu eða skóla í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða taktleysi er þetta?

Hvað er eiginlega að sumu fólki.  Þegar einhver þingmaður fer að velta fyrir sér ábyrgð ráðherra vegna gerða þeirra, þá rísa sumir upp á afturlappirnar og tengja það pólitískri stöðu viðkomandi hvernig hann talar.

Er það ekki eðlilegasti hlutur í heimi að kalla menn til ábyrgðar?  Ég þarf ekki nema að gleyma að greiða reikningana mína á réttum degi, þá er mér refsað.   Nú ef ég tel óvart rangt fram til skatts, þá á ég ekki neina afsökun, mín bíður sekt og þaðan af jafnvel eitthvað verra.

Veit ekki endilega hvort Geir ætti að segja af sér, hitt veit ég að ýmsir þingmenn og sumi ráðherrar vissu af þessu máli til fjölda ára, má ekki kalla þá til ábyrgðar.

Við verðum að læra af mistökunum!?  Ég hef axlað ábyrgð segir Birgir framsóknar, held að ráðherrann hans  hafi sagt það líka.   Gott fólk!  Hvað er að axla ábyrgð, blaðra eitthvað úr ræðustól Alþingis og horfa bláeygður í linsu sjónvarpsmanna?   Bull!  Það er algert lágmark að þessir menn sem fremstir eru í flokki og innvígðir í þessa nefndu hluti, axli ábyrgð með því að segja af sér.  Það er siðferðislega rétt og ekkert annað.


mbl.is Spurði hvort forsætisráðherra ætti ekki að segja af sér vegna Byrgismáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðlensk veirusýking?

Þegar landar okkar ná árangir í útlöndum þá fyllumst við stolti.  Stundum þvílíku stolti að það jaðrar við sjúkleika.  Björk, Sigrurós, bankarnir, Baugur, Eiður Smári, 1/2 íslendngar (listamenn og aðrir sem eru að gera það gott og eru ættaðir af klakanum) og fleiri og fleiri.

Svo bregður við þegar forseta vorum er boðið að sitja í ráðgjafanefnd á Indlandi, þá verða vissir aðilar alveg sótillir.

Helst er auðvitað að nefna Halldór Blöndal svo og Valgerði Sverrisdóttur.   Öfundin og forn fjandskapr viðist hafa tekið völdin í huga Halldórs og Valgerðar.  Halldór er auðvitað frægur fyrir fjandskap sinn í garð Halldórs, ég veit ekki hvers vegna, en þetta hefur auðvitað veri mjög áberandi í gegnum tíðina.

Ólafur sem forseti, eða Ólafur sem ekki forseti.   Hvaða máli skiptir það?   Getum við ekki sætt okkur við og verið ánægð með þá staðreynd að fjöldi erlendra kann að meta og sækist eftir stórbrotnum gáfum forseta vors. 

Ólafur hefur sýnt það ítrekað að hann nýtur trausts og virðingar á erlendri grundu.  Ég hef ekki betur getað séð en við landar hans hafi notið góðs af öllu því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur.  Hann talar máli okkar, hann hefur tækifæri til þess.   Það er það sem við viljum, er það ekki?

Öfund og sárindi sumra manna er þeim til vansa.


Bloggið

Eins og margir hafa sagt, þá virðist sem svo að sumir haldi stöðu sinni á forsíðu bloggsins klukkustundum saman  ef ekki dögum saman.   Ekki veit ég hvort það er vegna þess að þeir eru á einhverjum samningi, eða þá hitt að þetta eru oftast þekktar persónur úr þjóðlífinu.  Smáborgarinn í okkur vill alltaf fylgjast með fræga fólkinu, ekki satt?

Hitt veit ég líka að blogg okkar óbreyttra stendur svo stutt við á síðunni og fær þess vegna eðli málsins samkævmt oft á tíðum litla athygli.

Á maður að líta á þetta blogg sitt sem dagbókarfærslur sem hugsanlega væri gaman að lesa eftir ár eða tvö. Jafnvel að viðurkenna að þetta eru allt skrif fyrir fáa, jafnvel ekki fyrir neinn.

Samt tel ég það eftirgjöf, því ég verð að upplýsa að mörg bloggin vekja hjá mér ánægju þótt svo þau séu ekki lesin af mörgum.

Hvað þá?  Fara á Sægreifann og fá sér súpu og hrefnuspjót - það er lífið. 

Blogga svo pínu í viðbót...........

 


Gróði

Það er ljótt í hugum margra að halda því fram að fyrirtæki eigi að vera í  eigu hins opinbera.  Manni er sagt að opinber stjórnsýsla hafi öðrum hnöppum að hneppa heldur en að vasast í rekstri.  Nú er búið að selja fjölmörg arðvænleg fyrirtæki, og þau næstu eru á sölulínunni.   Jarðvegurinn er undirbúinn til að selja þau öll.   Þetta er svona svipað og rýmingarsala, allt skal selt og prútt leyft í lokin. 

Helstu rökin eru að fyrirtæki í einkaeigu geti tileinkað sér skilvirkari stjórnhætti, fljótari að aðlagast nýjungum, fljótari að taka ákvarðanir.   Líklega allt rétt, en mér er spurn?  Til hvers höfum við raunverulega verið að selja þessi fyrirtæki, hefur það fært okkur þessum meðaljónum einhvern arð?  Held ekki!  Flest eru þau grunnur í útrás, já þessari sem við erum svo ánægð með!?   Hvers vegna ættum við að vera ánægð?  Þjóðarstoltið er samt við sig, ef landinn er að gera það gott í útlöndum þá höldum við að okkar prívat persóna sé að gera það líka.   Eiður er á Spáni og ég er þar með góður í fótbolta. Bónusmenn með eignir vítt um heim, við höldum að það sé okkar prívat eign. 

Komum til baka og virkjum almenna skynsemi (hefur verið á hröðu undanhaldi seinustu árin),  það sem við höfum fengið eru okurvextir hjá bönkum, hátt verð á vöru og þjónustu, dýrt að fara af skerinu og heim aftur, en okkur er það nokkur sárabót að auðmenn landsins halda stórar afmælisveislur og ef við lýsum óánægju með slíkt hátterni, þá erum við víst forpokaðir sveitamenn. 

Þarf ekki að endurvekja gamla hugsun, gömul slagorð?

Öreigar allra landa, borga og bæja látum sveitirnar fylgja með, sameinumst!   Látum ekki keisara og konungsveldi liðins tíma ganga aftur. 


Samfylkingin úti að aka

Var að hlusta á Jón Baldvin í þættinum hans Egils.   Alltaf er gaman að hlusta á karlinn, hann virðist samt búinn að gleyma hversu mistækur hann var sjálfur á köflum þegar hann var og hét. 

Egill spurði Jón hvers vegna Samfylkingin væri með jafn lítið fylgi og raun bæri vitni um.  Jón lýsti því sem sinni skoðun að þessi tilraun væri sennilega að mistakast.   Nokkrar ástæður nefndi hann til, ss. að flokknum hefði mistekist að greina þau aðkallandi vandamál sem fyrir lægju.  Að ráðherrar í skuggaráðuneyti flokksins væru ekki sýnilegir og um leið ekki með nein svör við spuningum sem skipti máli.  Auðvitað kemur þetta ekki neitt á óvart.   Það voru fjölmargir sem áttuðu sig á því þegar í upphafi að þessi tilraun gæti aldrei tekist.   Klárlega fædd andvana.  Hvers vegna?  Jú, það eru gömul sannindi og ný og ætti öllum að vera ljóst að góður matur verður aldrei búinn til úr afgöngum.

Pólitísk stefnumörkun verður að vera byggð á einhverjum þeim sannindum sem flokksmenn geta sameinast um.  Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og einhverjir fleiri það var grunnurinn.  Grunnur sem var sprunginn þvers og kurs frá upphafi.  Þetta vissu flestir, þannig að í því ljósi eru orð Jóns ekki nein tíðindi.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband