Fór út að ganga, rétt si svona til að skila einhverjum kaloríum til baka!
Göngustígurinn sem ég var á reyndist svo háll að ég þakkaði mínum sæla fyrir að komast lifandi úr göngutúrnum. Ef til vill einhverjum kaloríum fátækari, en smjörsýran sem safnaðist upp verður örugglega grunnur að góðum strengjum.
Annars er það merkilegt hvað hálkuvörnum hefur hrakað síðan verkefnið var boðið út.
Hafið þið ekki séð þessa garpa aka um gangstéttarnar og dreifa sandi? Þeir fara oft svo hratt að maður telur sig heppinn að finna sandkorn eftir þá.
Annars er draumurinn að ná því að vera í flokknum Valin blogg. Hvernig ætli sé valið í hann? Þekkt nöfn yfirleitt, en ekki get ég séð að umræðuefnið sé nokkuð merkilegra en hjá okkur hinum, þessum lítt eða bara ekki frægu.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.