Í framsókn?

Það er dálítið skondið að sjá hvert efni þessa fundar er, sérlega í ljósi þess hver boðar til fundarins.

Ef mínar upplýsingar eru réttar, þá er þessi Bjarni framsóknarmaður.  'Eg velti því fyrir mér hvort hann fari ekki á almenna fundi í þeim flokki og berjist fyrir sínum sjónarmiðum þar.  Það er amk. ekki að sjá að það hafi gerst.  Framsóknarflokkurinn er stóriðjuóður flokkur til fjölda ára og leiðandi afl í landinu.   Þannig að óbreyttir framsóknarmenn verða að finna skoðunum sínum stað úti í hraglandanum. 

Það er þetta með hægri höndina og þá vinstri!


mbl.is Fjölmenni á útifundi við Urriðafoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Sigurður Haraldsson

Þetta er skrýtið sem kemur fram hjá þér Sigmar.  Af því að maðurinn er Framsóknarmaður má hann þá ekki hafa skoðanir á hlutunum á almannafæri?  Verður hann bara að fara á lokaða Framsóknarfundi til að láta í ljós skoðanir sínar? Einnig talar þú um að Framsóknarflokkurinn sé "leiðandi afl í landinu" flokkur sem er með þeim minnstu samkvæmt skoðanakönnunum þessa dagana.  Þú hefur greinilega mikla trú á honum.

Helgi Sigurður Haraldsson, 6.1.2007 kl. 21:09

2 identicon

kæri sigmar - það er rétt að við vorum úti í hraglandanum en það var vegna þess að við framsóknarmenn höfum gaman af að vera úti og getum því skoðað náttúruperlur landsins öðru vísi en bara af sjónvarpsskjá - framsóknarflokkurinn er og verður umhverfisverndarflokkur en víst þykir mér að þar megi skerpa á línunum og fundurinn gerði þar sitt gagn. bjarni framsóknarmaður

bjarni harðarson (IP-tala skráð) 6.1.2007 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband